NÝTTU KRAFTINN
NÝTTU KRAFTINN er 3ja mánaða ferli þar sem rauði þráðurinn er að ganga til hvers dags sem vinnudagur væri -gera sjálfan sig þannig samkeppnishæfari í atvinnuleitinni. Markviss tímaskráning sem nemur a.m.k. 4 tímum á hverjum virkum degi miðað við fjölbreytileg verkefni og vottanir viðurkenndar af atvinnulífinu. Boðið upp á áhugasviðspróf til að víkka hugann og skapa ný tækifæri sem og farið í gegnum fjöldan allan af verkefnum sem öll miða að því að styrkja þátttakendur í atvinnuleitinni. Nánari upplýsingar um NÝTTU KRAFTINN ferlið má finna hér til hliðar. VILTU SKRÁ ÞIG Í NÆSTA HÓP? Nýttu strax kraftinn og smelltu á hnappinn hér til hliðar Við förum reglulega af stað með nýja hópa en festum tímann ekki fyrr en að fjöldi þátttakenda er orðinn +/- 20 einstaklingar. Með því að smella á hnapp hér til hliðar getur þú skráð þig í næsta hóp og við sendum svo staðfestingu þegar að nákvæm tímasetning liggur fyrir. |



Sigríður Snævarr sendiherra og María Björk Óskarsdóttir viðskiptafræðingur mótuðu saman hugmyndafræði NÝTTU KRAFTINN haustið 2008. NÝTTU KRAFTINN miðar að því að hvetja atvinnulausa einstaklinga að nýta tíma sinn og kraft á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Nú hafa hátt í 600 manns tekið þátt og er almennt um 75% endurráðningarhlutfall í hverjum hópi sem er frábær árangur þátttakendanna.