Festur hefur verið tími á nýjan hóp í Nýttu Kraftinn en við förum af stað miðvikudaginn 26. janúar. Skráning hér á vefsíðunni er í fullum gangi. Upphafsdagarnir í þessu 3ja mánaða ferli eru tveir í röð þ.e. miðvikudagurinn og svo fimmtudagurinn 27. janúar - svo hittist hópurinn með okkur þremur vikum eftir þá daga. Allar nánari upplýsingar um Nýttu Kraftinn ferlið er að finna hér á síðunni.
Allir sem voru á biðlista hafa nú fengið sendan tölvupóst með öllum upplýsingum. Smella þarf á skráningarhnappinn vinstra megin á síðunni til að komast inn á skráningarformið.
Um 400 manns hafa nú tekið þátt í Nýttu Kraftinn og hefur það virkað mjög vel fyrir þátttakendur - árangur þeirra er mikill - sértu atvinnulaus og vilt komast aftur út á vinnumarkaðinn - skráðu þig þá endilega.... þú hefur engu að tapa! Mjög mörg stéttarfélög og VMST greiða fyrir sína félagsmenn eigi þeir tilskilinn réttindi.
María Björk & Sigríður Snævarr